Það er ekki laust við að manni sé kalt þessa dagana, veturinn
farinn að banka full harkalega að dyrum, ég fer út á mornana og er
með hroll allann daginn (nema þegar ég ligg undir sæng
)
Ronja er ekki alltaf búin með batteríin þegar hún er búin
í leikskólanum á daginn svo að við kíkjum oftast aðeins í garðinn
okkar á leiðinni inn, þar er sandkassi og fullt af dóti. Við sátum
í sandkassanum í gær og mér var orðið kalt og spyr Ronju
hvort við ættum nú ekki að fara inn, mér væri orðið svo kalt. Ronja
var ekki allveg á því að fara inn og segir við mig "mamma ég elska
þig líka þegar þér er kalt".
Fórum til Grundarfjarðar á laugardaginn að heimsækja tengdó,
gistum eina nótt það var voða næs gott að fara svona út úr bænum um
helgar, sérstaklega þegar maður er einhverstaðar þar sem maður þarf
ekki að elda sjálfur.
Ég er í einhverju jólaskapi þessa daganna ekki laust við að
manni langi í mandó og piparkökur mmmmmmmmmmmmmmmm, það gerir
kuldinn hann minnir á jólin. Annars er nú ekki langt þangað til
maður fær ógeð á jólunum, jólaskrautið fer að fylla allar búðir og
útvarpið byrjar að nauðga jólalögunum. Ég ætti kanski bara að farað
halda jól áður en ég fæ ógeð á þeim.
Þangað til næst Gleðileg Jól